MAGNEA

Viðskiptavinur
MAGNEA
Tegund verkefnis
Vörumerki, vefur og viðmótshönnun
Ár
2026
Um verkefnið

MAGNEA nýtir gögn og gervigreind til að spá fyrir um verð á sjávarafurðum. Þegar við komum að verkefninu voru fyrstu útgáfur af vef og vettvangi til staðar, en sjálfsmyndin enn ómótuð. Við sköpuðum vörumerkið, unnum nýjan vef og endurnýjuðum ásýnd vörunnar.

Sama ásýnd á vef og í vöru

Við mótuðum merkið og sjónræna ásýnd MAGNEA samhliða nýjum vef. Sú vinna varð síðan grunnur að endurnýjun viðmóts vörunnar, svo vefurinn og kerfið sem viðskiptavinir nota hefðu samræmt útlit.

Í vörunni unnum við með þá virkni sem þegar var til staðar. Við skilgreindum endurnýtanlegar viðmótseiningar í hönnunarkerfi og notuðum þær til að uppfæra skjáina. Þannig fékk teymið sameiginlegan grunn til að vinna áfram með.