Forvitin um hvað gæti orðið. Metnaðarfull um hvernig það verður gert.

Hugmyndafræði

Við vildum búa til stað þar sem góð hugmynd fengi bæði svigrúm og mótspyrnu.

Svigrúm til að taka á sig mynd. Mótspyrnu til að verða betri. Hjá Revera kemur fólk með ólíka reynslu að sama borði og spyr ólíkra spurninga. Það gerir vinnuna áhugaverðari og hugmyndirnar sterkari.

Við þróum eigin vörur og vinnum að verkefnum fyrir viðskiptavini. Í hvoru tveggja viljum við skilja hvað er þess virði að gera og vanda okkur við að koma því í notkun. Okkur finnst jafn mikilvægt að sjá hvernig hugmyndin reynist og hvernig hún lítur út í upphafi.

Hvernig við vinnum
  • Kynnumst verkefninu

    Við byrjum á samtali um starfsemina, fólkið sem á að nota lausnina og það sem þið viljið ná fram. Skoðum hvað er til staðar, hvað virkar og hvað þarf að hugsa upp á nýtt. Þið þurfið ekki að mæta með fullmótaða hugmynd.

  • Skipuleggjum vinnuna

    Við skilgreinum umfangið, forgangsröðum og mótum áætlun með ykkur. Förum yfir efni, uppbyggingu og helstu notendaleiðir, ásamt tæknilegum þörfum. Þannig vitum við hvað þarf að liggja fyrir og í hvaða röð er skynsamlegt að vinna.

  • Finnum rétta hönnun

    Við könnum ólíkar sjónrænar leiðir og ræðum þær með ykkur. Þegar stefnan liggur fyrir útfærum við skjái, síður og samskipti. Frumgerðir hjálpa okkur að prófa flæðið og taka ákvarðanir áður en farið er lengra.

  • Byggjum lausnina

    Hönnun og þróun vinna saman þegar við byggjum lausnina og tengjum þau kerfi sem hún þarf. Við veljum tæknina eftir verkefninu og höldum ykkur með í ferlinu, svo hægt sé að skoða vinnuna og bregðast við jafnóðum.

  • Prófum og opnum

    Við förum yfir virkni, efni og framsetningu á ólíkum skjám. Prófum helstu notendaleiðir, lögum það sem kemur upp og undirbúum opnun með ykkur. Teymið ykkar fær leiðsögn um það sem það þarf að geta sinnt sjálft.

  • Höldum áfram

    Eftir opnun sjáum við um viðhald og stuðning og vinnum áfram með ykkur að breytingum. Viðbrögð notenda og nýjar þarfir hjálpa okkur að ákveða næstu skref. Vefurinn eða varan á að geta þróast með starfseminni.

Teymið

Við höfum ólíkan bakgrunn og misjafnar leiðir að niðurstöðu. Það er hluti af ástæðunni fyrir því að okkur finnst gott að vinna saman.

Reynslan nær frá verkefnastjórnun og grafískri hönnun til appþróunar, leikjaiðnaðar og uppbyggingar hugbúnaðarfyrirtækja. Við tökum hana með okkur í vinnuna og höldum áfram að læra hvert af öðru.

Revera var stofnað 1. janúar 2025 af Birgi Hrafni Birgissyni, Bjarka Steini Birgissyni og Þórdísi Jónu Ingigerðardóttur ásamt Andra Má og Arnari Gísla frá Digido. Birgir er framkvæmdastjóri, Bjarki hönnunarstjóri og Þórdís tæknistýra. Andri Már og Arnar Gísli koma að félaginu sem ráðgjafar utan daglegs rekstrar.

Birgir Hrafn Birgisson
Birgir Hrafn Birgisson
Meðstofnandi og framkvæmdastjóri
Bjarki Steinn Birgisson
Bjarki Steinn Birgisson
Meðstofnandi og hönnunarstjóri
Þórdís Jóna Ingigerðardóttir
Þórdís Jóna Ingigerðardóttir
Meðstofnandi og tæknistýra
Meline Ahadzhanian
Meline Ahadzhanian
Hönnuður
Salome Jaghmaidze
Salome Jaghmaidze
Verkefnastjóri
Þórdís18. ágúst, 15:31

can we make this an emoji

Teymið fagnar Faris á fjarfundi.

Viðurkenningar

(5)

SVEF · Íslensku vefverðlaunin

  • LESAFyrirtækjavefur ársins: lítil fyrirtæki (færri en 10)2025
  • Inspired by IcelandFerðaþjónustuvefur ársins2025
  • Inspired by IcelandHönnun og viðmót ársins2025

Awwwards

Revera-teymið á Íslensku vefverðlaununum.

Hvað ertu að hugsa? Segðu okkur frá því.