Carrental

Flokkur
Ferðatækni
Staða
Í notkun
Útgefið
2025
Um Carrental

Carrental er stafræn bílaleigulausn með bókunarvél sem við þróuðum hjá Revera. Hún hjálpar ferðalöngum að skoða bíla, velja það sem hentar ferðinni og ganga frá bókun. Við hönnuðum upplifunina með sérstaka áherslu á að allt ferlið væri aðgengilegt í síma.

Skýr leið að næsta bíl

Við lögðum áherslu á framsetningu bílanna og leiðina frá því að skoða valkostina að því að bóka. Upplýsingarnar þurfa að vera auðfundnar og næsta skref skýrt, svo ferðalangurinn geti tekið ákvörðun og haldið áfram.

Á litlum skjá þarf að forgangsraða vel. Við unnum sérstaklega með skipulag og framvindu bókunarinnar í síma, þannig að sama ferli gæti gengið upp á ólíkum skjástærðum.