LESA

LESA er lestrarleikur fyrir börn á aldrinum 5 til 7 ára sem við hönnum og þróum hjá Revera. Daglegar sögur, verkefni og verðlaun eiga að gera lesturinn að venju sem börnin vilja halda í. Foreldrar geta fylgst með framförunum og haft yfirsýn yfir heimalesturinn.






Ástæða til að lesa á hverjum degi
Í LESA tengjum við lestur við leik. Ný myndskreytt saga bíður á hverjum degi og börnin safna merkjum og verðlaunum eftir því sem þau lesa. Eftir fimmtán mínútna lestur opnast leikvöllurinn, þar sem þau geta meðal annars breytt útliti persónunnar sinnar og leikið sér að orðum. Markmiðið er að gefa börnum ástæðu til að koma aftur og gera daglegan lestur að ánægjulegri stund.
Við höfum mótað vöruna og myndheiminn með LESA-teyminu og utanaðkomandi sérfræðingum. 14islands komu að helstu notendaflæðum og sjónrænni stefnu appsins, áður en við tókum hönnunina áfram og þróuðum appið. Ritstjóri fer yfir sögurnar og við höfum notið góðs af samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.





