Ró

Flokkur
Náttúruhljóð
Staða
Frumgerð
Um Ró

Ró er frumgerð að appi með hljóð- og myndupptökum úr íslenskri náttúru. Það er hugsað fyrir fólk sem vill hlusta á náttúruhljóð við vinnu eða í hvíld, og þau sem langar að kynnast Íslandi í gegnum staðina og hljóðin þeirra.

Íslensk náttúra, tekin upp á staðnum

Við tökum sjálf upp hljóð og mynd á ferðum um landið. Þær upptökur eru grunnurinn að Ró, þar sem hægt er að velja stað og dvelja í hljóðheimi hans.

Í frumgerðinni færist notandinn á milli staða með því að strjúka yfir skjáinn. Viðmótið er einfalt svo upptökurnar fái að njóta sín. Ró er enn á frumgerðarstigi og ekki hægt að sækja appið.