Gervigreind sem nýtist í ykkar vinnu.

Við hjálpum fólki og fyrirtækjum að nýta gervigreind í daglegum verkefnum. Það getur byrjað á Claude-námskeiði eða vinnu með teyminu ykkar að ákveðnu viðfangsefni. Við veitum ráðgjöf og aðstoðum við að koma nýju vinnulagi í notkun.
Byrjum á verkefni sem þið þekkið.
Við skoðum hvað tekur tíma, hvaða upplýsingar þið vinnið með og hvar gervigreind gæti komið að gagni. Prófum afmarkaða leið með ykkur og metum hvað þarf til að hún nýtist í daglegu starfi.
Þórdís Jóna, tæknistýra Revera, leiðir Claude-námskeiðin okkar fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Við vinnum líka með fyrirtækjum að innleiðingu og tengingum við gögn og tól. Claude er stór hluti af þeirri vinnu, en við aðstoðum einnig við önnur líkön þegar þau henta verkefninu.
Það sem við getum tekið að okkur
- Sérsniðin Claude-námskeið fyrir fyrirtæki
- Ráðgjöf um notkun gervigreindar
- Prófanir á afmörkuðum verkefnum
- Leiðbeiningar og vinnulag fyrir teymi
- Tengingar við gögn og tól
- Innleiðing og eftirfylgni
- Þróun lausna sem nýta gervigreind

Kynnstu Claude með Þórdísi.
Þórdís Jóna Ingigerðardóttir er tæknistýra Revera. Á námskeiðunum hennar færðu að vinna með Claude og kynnast því hvernig þú getur nýtt hann í eigin verkefnum. Opin námskeið eru á ohmyclaude.is.
Skoða námskeið.Hvað ertu að hugsa? Segðu okkur frá því.