Exeter

Viðskiptavinur
Exeter
Tegund verkefnis
Vefur
Ár
2026
Um verkefnið

Á Exeter mætast hótelgestir og heimafólk við gömlu höfnina í Reykjavík. Við höfðum unnið fyrri vef hótelsins og tókum nú næsta skref með teyminu: skýrari uppbyggingu og meiri lit í kynningu á stað sem hefur margt að bjóða utan herbergjanna.

Skýrari kynning á hótelinu og því sem er í boði

Vinnan hófst í sameiginlegri vinnustofu um það sem mætti bæta og það sem vantaði. Hún mótaði nýja uppbyggingu og leiðarkerfi, ásamt hugmyndum um myndefni sem við unnum með hótelinu og Digido. Þannig varð skýrara hvað gestir geta fundið á Exeter og í kringum það.

Í hönnuninni notuðum við litaða fleti sem tengjast utan um orðin í fyrirsögnunum. Þeir gefa textanum áberandi umgjörð, bæði yfir ljósmyndum og á dökkum bakgrunni. Litirnir koma einnig fyrir í merkingum og hnöppum á vefnum.