Flóra

Flokkur
Vefþjónusta
Staða
Í notkun
Stofnað
2023
Ásýnd Flóru: blóm í mjúkum fókus
Um Flóru

Flóra er vefþjónusta Revera fyrir fyrirtæki og markaðsteymi sem vilja hafa fólk með sér í daglegri vinnu við vefinn. Við sjáum um hönnun, þróun og áframhaldandi breytingar gegn föstu gjaldi, án stofnkostnaðar. Samstarfið heldur áfram eftir að vefurinn fer í loftið.

Vefur Inspired by Iceland, sem við smíðuðum í Framer
Forsíða LESA, sem við hönnuðum og smíðuðum
Verkefnasíða á vef ACT4, sem við hönnuðum og smíðuðum
Forsíða ACT4: „Nordic vision. Global stories.“

Vefurinn þróast með fyrirtækinu

Við byrjum á að skoða þarfir fyrirtækisins, skipuleggja efnið og finna hönnunarstefnu með teyminu. Síðan hönnum við og byggjum vefinn, prófum hann og undirbúum opnun.

Eftir opnun sjáum við áfram um vefinn. Nýjar síður, efnisbreytingar og uppfærslur verða hluti af samstarfinu, með sama fasta gjaldi. Ef fyrirtækið fær nýtt útlit aðlögum við vefinn að því líka. Markaðsteymið hefur því fólk sem þekkir vefinn og getur unnið með því að næstu breytingum.