Öpp sem fólk vill nota aftur.

Við hönnum og þróum öpp sem hjálpa fólki að sinna erindum, nýta þjónustu eða læra eitthvað nýtt. Við vinnum með ykkur að virkni og upplifun appsins, hvort sem þið eruð með fyrstu hugmynd eða app sem þarf að þróa áfram.

Skýr byrjun. Þægilegt í daglegri notkun.

Við skoðum hvað fólk kemur til að gera og hvernig það kemst þangað. Innskráning, fyrstu skref og endurtekin notkun þurfa að ganga upp saman. Við mótum flæðið og prófum það í frumgerðum áður en við útfærum skjái og virkni.

Við getum séð um hönnun og þróun saman eða komið inn í teymið ykkar þar sem þörfin er. Með LESA höfum við sjálf farið í gegnum vinnuna við að móta app, gefa það út og þróa áfram. Sú reynsla nýtist þegar við vinnum að vörum annarra.

Það sem við getum tekið að okkur

  • Mótun virkni og notendaflæðis
  • Viðmótshönnun og frumgerðir
  • Appþróun
  • Tengingar við gögn og önnur kerfi
  • Endurhönnun og áframhaldandi þróun

Hvað ertu að hugsa? Segðu okkur frá því.