Vörumerki með eigin svip.

Við mótum sjónræna ásýnd vörumerkja og hjálpum fyrirtækjum að þróa þau sem fyrir eru. Merki, letur og litir mynda grunn sem hægt er að vinna með á vefnum, í auglýsingum og í daglegu kynningarefni.

Ásýnd sem þið getið unnið með.

Við byrjum á að kynnast fyrirtækinu og því hvernig þið viljið koma fram. Könnum ólíkar sjónrænar leiðir og vinnum þær áfram með ykkur. Stundum þarf nýtt upphaf, en stundum er rétt að byggja á því sem fólk þekkir þegar.

Þegar stefnan liggur fyrir útfærum við ásýndina í raunverulegu efni. Leiðbeiningar og sniðmát hjálpa teyminu að nota hana áfram. Við getum líka hannað og þróað vefinn samhliða, svo vörumerkið og stafræn útfærsla þess verði unnin saman.

Það sem við getum tekið að okkur

  • Mótun sjónrænnar stefnu
  • Merki, litir og leturval
  • Sjónræn ásýnd og grafísk útfærsla
  • Hönnunarleiðbeiningar og sniðmát
  • Kynningarefni og stafræn útfærsla
  • Endurmótun núverandi ásýndar

Hvað ertu að hugsa? Segðu okkur frá því.