Mínar síður sem auðvelda erindin.
Við hönnum og þróum mínar síður þar sem viðskiptavinir geta séð stöðuna, uppfært upplýsingar og sinnt sínum málum sjálfir. Við tengjum viðmótið við kerfin á bak við þjónustuna, svo fólk fái aðgang að því sem það þarf á einum stað.
Upplýsingar og aðgerðir á sama stað.
Við byrjum á erindunum sem viðskiptavinir þurfa að sinna og því hvernig þau eru afgreidd í dag. Skoðum hvaða upplýsingar þurfa að birtast, hver má sjá þær og hvað gerist þegar einhver sendir inn breytingu eða umsókn. Viðmótið á að gera næsta skref skýrt og sýna hvort erindið hafi skilað sér.
Við tökum líka að okkur stjórnborð og innri kerfi fyrir starfsfólk. Þar vinnum við með sömu viðfangsefni, að gera upplýsingar skiljanlegar og auðvelda fólki að ljúka daglegum verkefnum.
Það sem við getum tekið að okkur
- Mínar síður og sjálfsafgreiðsla
- Stjórnborð og innri kerfi
- Innskráning og aðgangsstýringar
- Gagnabirting og stöðuyfirlit
- Umsóknar- og afgreiðsluferli
- Tengingar við rekstrarkerfi
Valin verkefni
Hvað ertu að hugsa? Segðu okkur frá því.

