Hitels

Flokkur
Ferðatækni
Staða
Í notkun
Útgefið
2025
Vefsíða
hitels.is
Um Hitels

Hitels er vef- og bókunarlausn Revera fyrir sjálfstæð hótel og minni hótelkeðjur. Hótel geta valið sérhannaðan vef, bókunarviðmót eða hvort tveggja. Markmiðið er að fá fleiri gesti til að bóka beint hjá hótelinu og halda í sérkenni þess alla leið að bókun.

Frá fyrstu kynnum að staðfestri bókun

Vefurinn á að hjálpa gestum að sjá fyrir sér dvölina og finna þær upplýsingar sem þeir þurfa til að velja. Við hönnum hvern vef út frá hótelinu sjálfu, með rými fyrir það sem gerir staðinn sérstakan.

Bókunarviðmótið heldur áfram þar sem vefurinn sleppir. Gestir geta gengið frá dvölinni með skýrum skrefum og skoðað viðeigandi tilboð og viðbætur á leiðinni. Hitels vinnur fyrst og fremst með Godo, en við skoðum tengingar við önnur kerfi eftir þörfum hvers hótels.