Vöruþróun sem kemur hugmyndum í notkun.

Við hönnum og þróum stafrænar vörur með fyrirtækjum sem vilja koma nýrri hugmynd af stað eða bæta það sem þegar er til. Við hjálpum ykkur að ákveða hvað varan þarf að gera, mótum upplifunina og byggjum hugbúnaðinn sem kemur henni í notkun.

Heildin eða sá hluti sem þið þurfið.

Við byrjum á að skilja hver á að nota vöruna og hvaða þörf hún á að leysa. Síðan forgangsröðum við virkni og prófum helstu leiðir með frumgerðum. Það hjálpar okkur að afmarka fyrstu útgáfu eða ákveða næstu skref fyrir vöru sem þegar er í notkun.

Hönnun og þróun vinna saman í gegnum verkefnið. Við getum tekið að okkur heildina eða unnið með teyminu ykkar að afmörkuðum hluta. Reynslan af eigin vörum, eins og LESA, fylgir okkur í þeirri vinnu, bæði við að koma þeim í loftið og halda áfram að þróa þær.

Það sem við getum tekið að okkur

  • Mótun vöruhugmynda og fyrstu útgáfu
  • Notendaflæði og frumgerðir
  • Viðmótshönnun og hönnunarkerfi
  • Hugbúnaðarþróun og kerfistengingar
  • Endurhönnun og áframhaldandi vöruþróun

Hvað ertu að hugsa? Segðu okkur frá því.