Herferðir sem vekja forvitni

Enginn bað um fleiri auglýsingar. Þess vegna þarf að vera eitthvað í þeim sem grípur fólk. Við mótum herferðarhugmyndir og hönnum auglýsingaefni með það í huga. Finnum hvað þið hafið að segja og hvernig það getur komið fólki við, hvort sem verkefnið er heil herferð eða ein vel útfærð hugmynd.

Það sem við getum tekið að okkur

  • Herferðarhugmyndir og skilaboð
  • Auglýsingahönnun
  • Stafrænar auglýsingar
  • Hreyfihönnun
  • Lendingarsíður
  • Kynningarefni og útfærslur fyrir ólíka miðla

Herferðir fyrir

Auglýsing sem við gerðum fyrir Hitels um hvernig Google Hotel Ads auka umferð á vef hótelsinsHitels
Hitels
Auglýsing sem við gerðum fyrir Hitels um hvernig Google Hotel Ads auka umferð á vef hótelsins
Hitels
01

Hugmyndin þarf að þola að fara út

Hugmynd getur litið vel út í kynningu og svo misst kraftinn þegar hún er komin í lítinn auglýsingaborða. Við hugsum um birtingarnar á meðan við mótum herferðina. Hvað fólk sér fyrst, hvað það hefur tíma til að lesa og hvernig hreyfing getur hjálpað.

Við vinnum auglýsingahönnunina áfram í þær stærðir og útgáfur sem þarf. Ef markaðsteymið ykkar er þegar með hugmynd getum við líka komið inn og unnið útfærslurnar með ykkur.

Hitels
02

Smellurinn þarf að leiða eitthvert

Auglýsingin getur vakið áhuga, en síðan sem tekur við þarf að standa undir honum. Við hönnum og smíðum lendingarsíður þar sem hægt er að kynna sér það sem var auglýst og taka næsta skref án óþarfa leitar.

Þar nýtist að við vinnum bæði að herferðum og vefjum. Við getum fylgt hugmyndinni alla leið í gegnum síðuna og eyðublaðið. Þegar verkefnið kallar á textagerð, ljósmyndun, myndband eða umsýslu birtinga fáum við viðeigandi samstarfsfólk með.

Spurt og svarað

Algengar spurningar um herferðir

Þurfum við að panta heila herferð?

Nei. Við getum tekið að okkur stakar auglýsingar, ákveðnar útfærslur eða lendingarsíðu. Umfangið fer eftir því sem þið eruð með og hvað vantar.

Getið þið unnið út frá okkar hugmynd?

Já. Við getum þróað hugmyndina með ykkur eða farið beint í hönnun og útfærslu þegar stefnan er ákveðin.

Gerið þið efni fyrir samfélagsmiðla?

Já. Við getum hannað auglýsingaefni fyrir samfélagsmiðla og aðlagað útfærslurnar að þeim birtingum sem á að nota.

Sjáið þið um ljósmyndun og myndband?

Við vinnum með viðeigandi sérfræðingum þegar slíkrar framleiðslu er þörf. Við förum yfir hugmynd, umfang og verkaskiptingu með ykkur.

Getið þið séð um auglýsingabirtingar?

Við getum samhæft þá vinnu með samstarfsfólki sem sér um birtingar. Sá hluti er skilgreindur sérstaklega með verkefninu.

Hvað viltu að fólk taki eftir?