LESA

LESA-vefurinn kynnir lestrarleikinn okkar fyrir foreldrum og börnum og sýnir hvernig appið virkar. Við hönnuðum og þróuðum vefinn með persónum, myndskreytingum og gagnvirkni sem gefa gestum sýn inn í heim leiksins.
Að kynna lestrarleik í gegnum leik
Við nýttum persónur og myndskreytingar LESA til að útskýra appið og gefa foreldrum og börnum fyrstu kynni af því. Gagnvirkir hlutar á eiginleikasíðunni sýna hvað hægt er að gera í appinu, á meðan hreyfingar og smáatriði gera sjálfa skoðun vefsins leikandi.
Vefurinn var unninn samhliða vörumerkinu og sjónrænni stefnu myndskreytinganna. Þar sem LESA er okkar eigin vara höfðum við frelsi til að prófa ólíkar útfærslur og ganga lengra í leikgleðinni. Vefurinn hlaut Honorable Mention hjá Awwwards og SVEF-verðlaun sem fyrirtækjavefur ársins í flokki lítilla fyrirtækja.




