ACT4

Viðskiptavinur
ACT4
Tegund verkefnis
Vefur
Ár
2025
Um verkefnið

ACT4 er lítið framleiðsluteymi með stórt tengslanet og metnað sem nær langt út fyrir Ísland. Þau vildu vef sem stæði upp úr þegar sjónvarpsstöðvar, kaupendur og fjármögnunaraðilar kynntu sér fyrirtækið. Við fundum sameiginlegan tón í pönkinu.

Pönkið í leturvali og uppbyggingu

Stórt, þétt letur og svart-hvítir fletir gefa vefnum ákveðinn svip. Forsíðan stillir fyrirsögninni upp á móti myndbandi úr verkum ACT4, með lóðréttri valmynd til hliðar. Framsetningin sækir í blaðaforsíður og lætur bæði textann og myndefnið taka pláss.

Efnisspjöldin vísa í bíómiða, með riflínum og hálfhringlaga skorum. Þau halda utan um kynningu á fyrirtækinu og vinnu þess, á meðan kvikmyndirnar og sjónvarpsverkefnin fá stærri myndfleti.