North of Normal

North of Normal þekkir Ísland vel og sér það aðeins öðruvísi. Fyrirtækið skipuleggur einkaferðir fyrir alþjóðlega ferðaráðgjafa og kom til okkar með karaktermikið vörumerki frá Aton. Við færðum þá sýn yfir á vef sem þarf að vekja jafnt forvitni og traust.




Óvenjulegt vörumerki í skýru viðmóti
North of Normal kom með sterka og óvenjulega ásýnd frá Aton. Okkar vinna var að útfæra hana á vefnum þannig að sérkennin héldust, en ferðaráðgjafar gætu auðveldlega kynnt sér þjónustuna og fólkið sem þeir væru að treysta fyrir viðskiptavinum sínum.
Við gáfum tímaritinu mikið vægi, með myndasögum sem flett er til hliðar og ólíkum útfærslum greina. Þar getur hönnunin verið frjálslegri, á meðan þjónustu- og teymissíður hafa skýra uppbyggingu. Þannig rúmar vefurinn bæði kynningu á fyrirtækinu og sögur sem sýna hvernig það sér Ísland.
