Teya

Viðskiptavinur
Teya
Tegund verkefnis
Vefur
Ár
2025
Um verkefnið

Vefur Teya þjónar mörgum mörkuðum og að baki honum stendur fólk í ólíkum löndum. Við komum með Framer-þekkingu inn í það samstarf og unnum með alþjóðlegu teymi Teya að þróun vefsins, með sérstaka ábyrgð á íslenska hlutanum.

Vefþróun með alþjóðlegu teymi

Teya leiðir hönnunina og þróunin er sameiginleg vinna teymanna. Við sinnum íslenska hlutanum og viðhaldi, ásamt afmörkuðum hönnunarverkefnum þegar þörf er á.

Útgáfur fyrir ólíka markaði kalla á samræmingu. Áður en ný síða fer í loftið þurfa þýðingar og staðbundið efni að vera tilbúin og fulltrúar markaðanna að yfirfara sínar útgáfur. Við vinnum innan þess ferlis með teyminu hjá Teya.