Studio Auður

Viðskiptavinur
Studio Auður
Tegund verkefnis
Vefur
Ár
2026
Um verkefnið

Studio Auður er innanhússarkitektastofa sem leggur áherslu á hvernig fólk upplifir rými. Við hönnuðum og smíðuðum vefinn með stórum ljósmyndum, einfaldri leturvinnu og nóg af plássi fyrir verkin. Útlitið er látlaust, en við leyfðum okkur að leika okkur töluvert með leiðarkerfið og hreyfingarnar.

Merkið og verkefnin á forsíðu Studio Auðar
Kynningin á forsíðu Studio Auðar, þar sem textinn vefst um merkið í þrívídd
Myndaborðinn á stúdíósíðu Studio Auðar, sem sveigist á ská þegar skrunað er
Opnun verkefnis 2301 á vef Studio Auðar, með númerið beggja vegna myndarinnar

Allur vefurinn í einni valmynd

Opnaðu valmyndina og síðan minnkar þar til þú sérð allar síðurnar hlið við hlið. Smelltu á eina og hún stækkar upp í fulla stærð. Þú sérð þannig hvert þú ert að fara áður en þú ferð þangað. Við útfærðum hreyfingarnar og litlu viðbrögðin við músinni af sömu nákvæmni og uppsetninguna sjálfa.

Við gátum heldur ekki látið 404-síðuna í friði. Þar byggðum við gagnvirkt þrívítt hús þar sem hvert herbergi er síða á vefnum. Stofan leiðir á forsíðuna, lesstofan í hugleiðingar og gangurinn í myndasafnið. Ef þú villist ertu bara í sólstofunni sem á eftir að byggja.